Íslendingar töpuðu 300 milljónum á netkaupum

Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, er gestur Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Þar ræðir hann hagkerfi undirheimanna á Íslandi.

Í gær fór fram fundur á vegum Félags viðskipta- og hagfræðinga þar sem var fjallað um þetta. Karl Steinar hélt þar erindi. „Það sem ég var að nálgast í gær á þessum fundi er í rauninni í takt við það sem menn hafa verið með ábendingar um í Evrópu, að fá yfirvöld, lögreglu, skattayfirvöld og fleiri til þess að skoða þennan þátt í brotastarfseminni, peningaþáttinn allan saman, grunnþáttinn í því. Það sem ég var að gera var að útskýra aðeins fyrir mönnum þá breytingu sem hefur verið að eiga sér stað, kannski aðeins dýpra heldur en við erum að gera öllu jafna, þ.e.a.s. velta fyrir nokkrum peningatengdum atriðum. Ég var líka aðeins að koma inn á íslensku menninguna því tengt,“ segir Karl Steinar.

Hann segir brotahópa orðna fjölbreyttari í brotastarfsemi sinni og að notkun netsins eigi stóran þátt í því. „Staðreyndin er sú að það eru núna starfandi í Evrópu í kringum 5.000 skipulagðir brotahópar og þeir eiga þarna sammerkt að vera alltaf meira og meira að fóta sig í fjölbreyttari brotastarfsemi. Grunnþátturinn er ennþá fíkniefnaþátturinn, hann er sá sem virðist vera arðbærastur, en það eru aðrir brotaþættir sem eru að koma inn, eins og t.d. mansal, vændi, alls kyns svikamál og fleira. Líka þjófnaður eins og ökutækjaþjófnaður og fleira. Svo er netþátturinn, hann eiginlega þverar allt, þ.e.a.s. hann kemur inn í þetta með þeim forsendum að netið er notað við brotastarfsemina og þróunin er s.s. þessi, að þessir hópar, þeir eru að sameinast um ákveðin brotaverkefni og þeir eru að notfæra sér þekkinguna sem þeir hafa, t.d. á smygli á fíkniefnum, til þess að smygla fólki.“

Karl Steinar segir fjölmörg dæmi um að einstaklingar og fyrirtæki lendi í svikum tengdum netverslun. „Það eru alveg dæmi hjá okkur. Við erum núna með til rannsóknar hjá okkur á síðustu mánuðum hugsa ég að andvirði um 300 milljónir, sem er bæði fyrirtæki og einstaklingar sem hafa lent illa í þessu, hafa verið sviknir. Þetta getur verið á ýmsan hátt, þetta getur verið hópur sem er að fara í sumarfrí og er búinn að borga fyrir húsnæði, sem kemur svo í ljós að greiðslan hefur ratað eitthvað annað vegna þess að það kom þarna einhver melding inn á milli, tilkynning um það hvert ætti að greiða þetta. Fyrir einstaklinga að ætla að missa sumarfríið sitt út af milljón króna millifærslu sem fer á rangan stað, þetta er náttúrulega verulegt högg.“

Nánar er rætt við Karl Steinar í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.