Tanja biðlar til Ara vegna dagskrár Sjómannadagsins – Birtir svörin frá Ólafsfirði

Tanja Ísfjörð hefur biðlað til Ara Eldjárns, skemmtikrafts, að taka ekki þátt í skemmtunum þar sem konur koma hvergi við sögu. Tilefnið er dagskrá Sjómannadagsins á Ólafsfirði næstu helgi. Dagskráin nær frá föstudegi til sunnudags, á henni eru þeir Ari Eldjárn, Ingó Veðurguð, Auðunn Blöndal, Pétur Jóhann og Steindi Jr., en engin kona.

Tanja birtir á Twitter samskipti sín við skipuleggjendur hátíðarinnar, hún segir:

E2qfxERXoAIXmxg.jpg

Tanja biðlar til Ara:

„hæ! Þú sem listamaður, geturðu passað að taka ekki þátt í giggum þar sem konur eru algjörlega útilokaðar? Eða er það alveg ómögulegt? Spyr af einlægni því svoleiðis afstaða myndi auðvelda okkur þessa baráttu helling“

Færslan hefur vakið mikil viðbrögð á Twitter, meðal þeirra sem deila er þingkonan fyrrverandi Ásta Guðrún Helgadóttir, sem segir: „Held það sé kominn tími til að íslenskir skemmtikraftar taki sig saman og komi ekki fram á hátíðum þar sem eru engar konur meðal skemmtikrafta. Svipað og "no manels" aka þegar karlar hættu við að mæta á panela þar sem engum konum var boðið að mæta.“