Talsverðar hræringar hafa verið í Heklu undanfarinn hálfan annan sólarhring. Allmargir skjálftar hafa mælst í eldfjallinu, sá stærsti 1,5 á Richter og margir minni, en þessi hrina vekur athygli fyrir þær sakir að fjallið hefur varla bært á sér svo nokkru nemi frá því fyrir páska 2014. Ármann Höskuldsson jarðeðlisfræðingur segir ólíklegt að Hekla fari að gjósa á næstu klukkutímum, en vissulega sé hún komin á tíma. Hekla hefur raunar oft blásið án mikils fyrirvara og leikið vísindamenn nokkuð grátt, en síðast þegar hún gaus, í febrúar 2000, var nokkurnveginn vitað upp á mínútu hvenær hún eldaði himna, enda hefur mælitækjum fjölgað mjög í kringum eldfjallið á síðustu áratugum sem auðvelda fræðingum rannsóknir og mat á aðstæðum við Heklu.
Talsverðar hræringar í heklu
Fleiri fréttir
Nýjast