Niðurtalningarljós fyrir gangandi vegfarendur á gatnamótum Bankastrætis og Lækjargötu voru virkjuð í dag. Breytingin frá hefðbundnum gangbrautarljósum á Lækjargötu er að nýtt ljósker er nú fyrir ofan „rauða og græna kallinn“. Þegar rauða ljósið logar er talið niður hvenær grænn kall kemur og þegar græni kallinn logar sýnir niðurtalningin sekúndur þar til sá rauði kemur á ný.
Bætt öryggi er meginástæðan fyrir uppsetningu ljósanna en niðurtalningarljósin hjálpa fólki að virða ljósin. Forgangur Strætó eftir Lækjargötu hefur í för með sér að lengd rauða gönguljóssins getur verið breytileg. Stýrikerfið nemur strætisvagna þegar þeir nálgast gatnamótin og gefur þeim svigrúm til að komast yfir gatnamótin og á meðan logar rautt á gangandi. Þegar örugg boð hafa borist inn í kerfið um að strætisvagn sé á leið í gegn hefst niðurtalningin. Meðan ekki eru komin örugg boð logar rauða niðurtalningin og sýnir 1+ þar til öruggt er að fara í ferli til að skipa yfir í grænt.