Í rannsókn fyrirtækisins Rannsóknir & ráðgjöf ferðaþjónustunnar um erlenda ferðamenn og hringveginn, kemur fram að erlendir ferðamenn hafi ekið um 660 milljónir kílómetra á vegum landsins. Álagið á þjóðvegi landsins hefur því margfaldast á nokkrum árum. Samkvæmt rannsókninni notuðu 1,3 milljónir ferðamanna bílaleigubíla árið 2018 hér á landi. Mbl.is greindi frá þessu.
Talið er að umferð ferðamanna hér á landi sé 22% af allri umferð á Íslandi. Hefur umferð ferðamanna aukist umtalsvert undanfarin ár og er um að ræða 660% aukningu frá árinu 2010. Þá hefur umferð ferðamanna yfir vetrarmánuðina aukist um allt að 1500% frá árinu 2010.