Taldi 14.000 manns á austurvelli

\"14.248 lögðu leið sína á Austurvöll í dag að krefjast kosninga strax,\" segir Daði Ingólfsson sem stundað hefur talningar fólks við mótmæli síðustu daga með mælum.
Afar fjölmennt var á Austurvelli og mikil stemmning að sögn þeirra sem komu saman. Lögreglan segir að allt hafi farið vel fram en þung undiralda krefst kosninga og að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra fari frá svo nokkuð sé nefnt.
 
Boðað hefur verið til fundar á morgun í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins vegna atburða síðustu daga. Samkvæmt frétt Rúv fást engar upplýsingar  um hvort ræða eigi á fundinum hvort flýta eigi landsfundi Sjálfstæðisflokksins vegna stöðunnar sem nú er uppi í íslenskum stjórnmálum.