\"Það er komin upp sú staða að við erum með forsætisráðherra í landinu sem hefur sinn varaforða erlendis á meðan þjóðin er í gjaldeyrishöftum,\" segir Róbert Marshall, þingmaður Bjartrar framtíðar sem vill leggja fram vantrauststillögu á ráðherrann.
Þetta kom fram í samtali við Róbert í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun, en þar sagði hann enn enga ákvörðun hafa verið tekna innan þingflokksins um hvort lögð verði fram vantrauststillaga á Sigmund Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, vegna Wintris-málsins svokallaða. Hann segir að menn hljóti þó að íhuga það, sjálfur vilji hann gera það.
Hann segir mótsagnirnar í í þessu máli öllu saman vera hrópandi. Landsmenn sitji uppi með forsætisráðherra sem tali fyrir gjaldmiðli fyrir alla þjóðina og segir hann bestan í heimi en sé síðan með eigur í erlendum gjaldmiðli. Og búi síðan til einhvern skrípaleik að þetta séu ekki hans peningalegu hagsmunir heldur konu hans: \"Það veit allt venjulegt fólk að þannig er það ekki,“ sagði Róbert Marshall í Morgunútvarpi Rásar 2.
Forsætisráðherra hefur enn ekki orðið við ítrekuðum beiðnum um viðtal, og ekki heldur svarað skriflegum fyrirspurnum fréttastofu RÚV eða annarra fjölmiðla vegna málsins. Málið hefur valdið titringi innan Sjálfstæðisflokksins, og þingmenn hans eru tregir til að tjá sig um málið opinberlega eins og lesa má úr öðrum tengdum fréttum Hringbrautar um málið..
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata segir til að mynda það vera óhugsandi að forsætisráðherra sitji áfram í ljósi þeirra upplýsinga sem fram hafa komi.