Talar fyrir því að ástvinir fari með minningarorð í útförum í stað presta

Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstarréttardómari, vakti athygli á því á dögunum í pistli í Morgunblaðinu að ástvinir geti séð um minningarorð í jarðaförum í stað presta.

Hann veltir því fyrir sér af hverju sá siður ríki á Íslandi að prestur sé fenginn til að flytja minningarorð um hinn látna, þar sem presturinn hittir nánustu ástvini, fær hjá þeim upplýsingar um æviferil viðkomandi manns og flytur síðan minningarorðin fyrir hönd fjölskyldunnar.

Jón steinar var gestur í Síðdegisútvarpi Rásar 2 í gær. Hann sagði að það væri ekkert betra en að einhver sem þekkti hinn látna og þótti vænt um hann talai við útförina.

„Prestarnir gera þetta oft vel en það verður aldrei jafn hlýlegt og þegar einhver sem þekkti hinn látna talar,“

Hann segir að það sé oft persónulegra og að þeir sem þekktu hinn látna eigi auðveldara með að segja brandara eða skemmtisögu en prestar.
„Það er ekkert að því að hlæja í kirkju þegar það á við,“

Prestar hafi lýst yfir óánægju sinni

Jón Steinar sagði í Síðdegisútvarpinu að tveir prestar hafi lýst yfir óánægju sinni eftir að hann tjáði sig opinberlega um málið. Þeir töldu það skapa einhverja lausung við útfarir. Jón bendir þó á að engin lög segi til um að þetta sé ekki hægt óski aðstandendur eftir því að flytja minningarorð í stað prests.

„Það sem vakti fyrir mér var að vekja athygli á því að við getum alveg gert þetta þannig að athafnirnar verði aðeins frjálslegri og hlýlegri,“ sagði Jón Steinar.