„Eftir orrahríð dagsins sýnist mér að Vestmannaeyjar séu komnar á bannlista íslenska ríkisins. Þegar ég reyni að kveikja á fréttum RÚV þá fæ ég þær upplýsingar að slíkt sé bara mögulegt á Íslandi,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja í nýrri fésbókarfærslu sinni.
Með þesum orðum sínum er bæjarstjórinn að vísa til gagnrýni sinnar á framgöngu utanríkisráðherra vegna viðskiptadeilu Íslands og Rússlands. Elliði heldur áfram og segir að líklega sé þá ekki annað að gera en að lýsa yfir sjálfstæði Vestmannaeyja og fá Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, til þess að viðurkenna Eyjamenn sem sjálfstæða þjóð.
Hann bætir broskalli við síðustu setninguna - og vísar þar til þess að þegar Jón Baldvin viðurkenndi sem utanríkisráðherra sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna fyrir um aldarfjórðungi.
Í lokin bætir hann við athugasemd við eigin stöðufærslu og segir að um smá bilun hafi verið að ræða hjá sér, an allt allt sé komið í lag.