Talar fyrir sameningu háskóla

Jón Atli Benediktsson, nýkjörinn rektor Háskóla Íslands, sem tekur við embætti 1. júlí næstkomandi, telur aukna samvinnu íslenskra skóla á háskólastigi afar æskilega - og jafnvel að af sameiningu einhverra þeirra þurfi að verða.


Þetta kom meðal annars fram í þættinum Þjóðbraut þar sem Páll Magnússon ræddi við nýkjörinn rektor um stefnu hans á næstu árum, en hann tekur við af Kristínu Ingólfsdóttur sem verið hefur rektor HÍ í áratug.


Jón Atli hafði betur gegn Guðrúnu Nordal í endurteknu rekstorskjöri í síðasta mánuði, en hann þykir að mörgu leyti vera maður fólksins innan Háskólans, með áherslur sem jafnt kennarar hans og nemendur eru sammála um að geti fleytt skólanum fram um veg, en bætt starfskjör fyrir allt starfsfólk skólans voru ofarlega á stefnulista hans í rektorskjöri ásamt metnaði til að vera á meðal bestu rannsóknarháskóla í heiminum.


Hægt er að nálgast Þjóðbraut á hringbraut.is, undir sjónvarpsflipanum, eða klippur úr þættinum á forsíðu vefjarins.