Samflokksfólkið og fyrrum vinnufélagarnir hjá Samtökum atvinnulífsins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Þorsteinn Víglundsson, sem bæði voru kjörin á þing fyrir Viðreisn, lesa bæði úrslit kosninganna á þann veg að kjósendur hafi hafnað vinstri stjórn.
„Við fundum það á síðustu vikunni að það færðist töluverður ótti yfir kjósendur varðandi hreina nýja vinstristjórn. Ég held að það séu nú megin skilaboðin sem megi lesa út úr þessum kosningum,“ sagði Þorsteinn Víglundsson oddviti Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður við 365.
Þorgerður Katrín talaði á sama veg í hádegisfréttum 365.
Fyrsti þingflokksfundur Viðreisnar var í dag.