Lögbundið er að fjárlagafrumvarp skuli leggja fram annan þriðjudag í september, eftir því sem fram kemur á Pírataspjallinu.
\"Kosningar í október eða \"haust\" eru bara ekki að virka. Þá á eftir að mynda stjórn og klára fjárlögin sem einhver annar flokkur og fjármálaráðherra lagði að öllum líkindum fram. Og þau þarf að samþykkja fyrir áramót. Þetta er rugl í gegn,\" segir Margrét Tryggvadóttir, fyrrum þingmaður í færslu á Pírataspjallinu á facebook.
Tromp ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks til að skapa frið í samfélaginu er annars vegar að hafa skipt um forsætisráðherra. Hins vegar hafa oddamenn stjórnarinnar upplýst að boðað verði til þingkosninga í haust.
Það telur Margrét Tryggvadóttir óframkvæmanlegt.