Táknar innlendan uppruna

Íslenska fánaröndin mun í framtíðinni tákna innlendan uppruna. Og að íslenskir framleiðendur fylgi ákveðnum gæðaferlum. 

Í maí 2006 gekk Samband garðyrkjubænda til þess verks að skrá íslensku fánaröndina og dropamerki í íslensku fánalitunum hjá Einkaleyfastofu.Þetta þýðir að þessi tvö merki eru eign Sambands garðyrkjubænda og eru einkaleyfisvarin sem slík. Þannig að enginn hér heima eða erlendis má nota þau eða önnur áþekk merki til að kynna íslenska vöru eða íslenska þjónustu. Án leyfis frá Sambandi garðyrkjubænda. 

Mjög mikilvægt er að neytendur viti ævinlega hvort vara er íslensk. Og þá að hvaða marki hún er íslensk.

 Nánar á www.neytendastofa.is og www.els.is og www.bbl.is