Það virðist vera komið í tísku hjá leiðtogum ríkja í málamyndalýðræðisríkjum að breyta reglunum þannig að þeir geti verið sem lengst í embætti. Nú hefur þetta gerst í Kína. Kommúnistaflokkur Kína tilkynnti í gær að ætlunin væri að afnema takmarkanir sem verið hafa í gildi um hámarkskjörtímabil Kínaforseta.
Stjórnarskrárbreytingin kemur mjög á óvart. Reglan um takmarkaðan valdatíma forsetans hefur gilt í áratugi til að sporna við því að landið hyrfi aftur til einræðistíma Mao formanns. Hún er sögð til marks um þá stefnu Xi Jinpings forseta að herða tök stjórnarflokksins á nútímavæddara Kína. Stuðningsmenn forsetans vilja að Kína endurheimti sinn heimsveldissess og telja Xi Jinping einan geta áorkað því.
Að því er segir í frétt New York Times kom jafnvel reyndustu Kínasérfræðingum á óvart hversu hratt Xi treystir völd sín. Hann er rétt svo að klára fyrra kjörtímabil sitt samkvæmt núverandi stjórnarskrá. Kommúnistaflokkur Kína samþykkti í fyrrahaust að innleiða einstaka þætti í hugmyndafræði Xi Jinpings í stjórnarskrána. Slíkt hefur ekki gerst síðan á tímum Mao.