Miklar tafir hafa orðið á uppsetningu jáeindaskannans sem Íslensk erfðagreining gaf íslensku þjóðinni í september árið 2015, en í framhaldi af því var ákveðið að byggja utan um hann og fleira sem honum fylgdi á lóð Landspítalans við Hringbraut.
Skanninn er PET/CT-myndgreiningartæki sem finnur æxli í mannslíkamanum og greinir þau. Samkvæmt áætlun átti skanninn að vera kominn í gagnið sléttu ári síðar. Nú eru liðin tvö og hálft ár og sjúklingar þurfa enn að leita til Danmerkur eða Svíþjóðar til að komast í slíkan skanna og kostnaðurinn rýkur upp.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er ósáttur við þær tafir sem orðið hafa á verkefninu. Í samtali við DV segir hann: „Mér finnst það bölvað. Mér finnst þetta bera merki um takmarkalausan drullusokkshátt af spítalanum. „So what else is fucking new?““
Hverju er um að kenna?
„Nú verð ég að vera sanngjarn. Það er ýmislegt sem getur gerst. Það þurfti að reisa hús utan um skannann og staðla aðferðir við að búa til ísótópana. Einhverjir verktakar fóru yfir tímann og það er alveg ofboðslega pirrandi, en svona gerist. Ég get lofað þér því að það er hægt að koma svona löguðu hraðar í gegn. Eins og er get ég lítið sagt um þetta mál annað en að það pirrar mig,“ segir Kári við DV.