Takmarkað val sjúklinga

Á Íslandi hefur val sjúklinga verið takmarkað og heilbrigðiskerfið hefur ekki í nægilegum mæli verið byggt upp til að mæta þörfum sjúklinga.  Hið opinbera er ráðandi í veitingu heilbrigðisþjónustu og hefur algjöra yfirburðastöðu og aukinnar miðstýringar hefur gætt.

Það ræðir Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri á vef SA-Samtaka atrvinnulífsins.

Hugarfarsbreyting á þessu sviði er nauðsynleg og að einkaaðilar geti sinnt margs konar þjónustu fyrir ríkið.  Annars er hætta á að opinbert fé nýtist ekki nægilega vel.

Einkarekstur í heilbrigðisþjónstu hefur aðeins verið nýttur að takmörkuðu leiti á Íslandi.  Fjölmörg dæmi er þó að finna um jákvætt framlag einkarekinna íslenskra heilbrigðisfyrirtækja sem hafa sýnt fram á að þau geta veitt jafngóða þjónustu eða betri þjónustu en hið opinbera með hagkvæmari rekstri fyrir þjóðfélagið.

Breytinga er þörf. Bið sjúklinga eftir brýnum aðgerðum eins og liðskiptaaðgerðum hjartaþræðingum og augasteinsaðgerðum - svo dæmi séu tekin - lengist frekar en styttist með tilheyrandi óþægindum.

 

 

rtá

Nánar www.sa.is