Taka sér mánuð lengur í viðræður

Á miðnætti rann út fresturinn sem viðsemjendur höfðu fengið frá skuldabréfaeigendum til að klára kaup bandaríska fjárfestingafélagsins Indigo Partners á tæplega helmingshlut í WOW air. Í tilkynningu á heimasíðu WOW er greint frá því að samningaviðræður milli WOW air og Indigo Partners muni standa yfir í a.m.k. einn mánuð í viðbót og vonast er til þess að niðurstaða liggi fyrir í síðasta lagi 29. mars. Túristi.is er meðal þeirra sem greina frá.

Ekki liggur fyrir hvort skuldabréfaeigendur í WOW air þurfi að veita samþykki fyrir þessari framlengingu, líkt og þurfti síðast þegar viðræðum var seinkað.

Þann 29. mars verða fjórir mánuðir liðnir frá því að kaupsamningi Icelandair á WOW air var rift.  Sama dag hófst svo samningalota WOW og Indigo Partners, sem hefur nú staðið yfir í þrjá mánuði. Sá langi tími og eftirgjöf skuldabréfaeigenda í WOW air hefur ekki dugað þeim Skúla Mogensen, eiganda WOW air, og William Franke, stjórnanda Indigo Partners, til að komast að samkomulagi.

Áður hefur þó verið gefið út að heildarfjárfesting Indigo í íslenska lággjaldaflugfélaginu geti numið hátt í 9 milljörðum króna. Bandarískt fyrirtæki eða einstaklingur getur þó ekki átt meirihluta í evrópskum flugfélögum og þar með yrði Skúli líklega áfram meirihlutaeigandi. Túristi hefur áður greint frá því að það yrði þá líklega eingöngu að nafninu til.