Tæpt orðið um ferðalög á pólinn

Íshettan sem liggur yfir Norðurpólnum hefur þynnst um þrjá metra á síðustu árum og er nú vart orðin meiri en hálfur annar metri á síðustu gráðunni á þennan enda jarðar. Síðasta gráðan er einmitt sú vegalengd sem flestir pólfarar ganga á leið sinni á Pólinn þegar líða fer á vetur og sól sést aftur á lofti. Á þessum tíma hefur verið boðið upp á flug frá eyjunum nyrst í Kanada út á ísbreiðuna, en nú er svo komið að sögn Leifs Arnar Svavarssonar pólfara og leiðsögumanns hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum að flugvélar geta varla lent lengur á hafþakinu, enda minnir það orðið meira á ísrek og hröngl en staðfasta íshellu. Leifur Örn, sem var gestur í heilsu- og útivistarþættinum Lífsstíl síðastliðið mánudagskvöld, segir að ef fram haldi sem horfi sé allt útlit fyrir að flug leggist af á svæðið þar sem pólfarar leggja upp í síðasta áfangann á Pólinn vegna þessa ótrygga íss sem nú er byrjaður að bylgjast undir heimskautasjónum á svæðinu.