Tæplega helmingur landsmanna á móti innleiðingu þriðja orkupakkans en stuðningur eykst

Tæplega helmingur landsmanna, 47 prósent, kvaðst andvígur því að þriðji orkupakki ESB taki gildi á Íslandi en rúmur þriðjungur, 34 prósent, kvaðst því fylgjandi. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 7. - 14. júní 2019.

Alls kváðust 33 prósent þeirra sem tóku afstöðu vera mjög andvíg innleiðingu 3. orkupakkans, 13 prósent frekar andvíg, 20 prósent bæði andvíg og fylgjandi, 15 prósent frekar fylgjandi og 19 prósent mjög fylgjandi. Lítill munur er því á heildarafstöðu frá könnun maímánaðar en líkt og í fyrri könnun tók tæplega þriðjungur þátttakenda, eða 29,6 prósent, ekki afstöðu til spurningarinnar.

Samkvæmt könnuninni jókst stuðningur við þriðja orkupakkann frá síðustu könnun á meðal stuðningsfólks allra ríkisstjórnarflokkanna. Mest var aukningin hjá stuðningsfólki Vinstri grænna, en alls kváðust 44 prósent þeirra fylgjandi orkupakkanum, sem er aukning um 18 prósentustig. Þá kváðust 34 prósent stuðningsfólks Framsóknarflokksins og 33 prósent stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins fylgjandi innleiðingu þriðja orkupakkans.

Andstaða við þriðja orkupakkann fór minnkandi á meðal stuðningsfólks Miðflokksins frá könnun maímánaðar en 90 prósent þeirra kváðust andvíg innleiðingu hans, sem er 10 prósentustigum minna en við síðustu mælingu. Alls kváðust 75 prósent stuðningsfólks Miðflokksins mjög andvíg innleiðingunni, samanborið við 93 prósent í könnun maímánaðar.