Tæplega 60% íslendinga telja sig hafa upplifað kulnun í starfi - um 35% segjast vera í kulnun núna

Tæplega 60% fólks á íslenskum vinnumarkaði telja sig örugglega eða líklega hafa upplifað kulnun einhvern tímann á ævinni og 35% telja sig vera í kulnun núna. Stuðningur við vinnutengd verkefni og erfiðleika í vinnunni virðist skipta miklu máli þegar kemur að kulnun og er fólk sem telur sig fá slíkan stuðning, til dæmis frá næsta yfirmanni, ólíklegra til að hafa upplifað kulnun.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri könnun sem Gallup mun kynna ítarlega á ráðstefnunni Innsýn í mannauðinn á Grand Hótel þann 6. febrúar næstkomandi. Á ráðstefnunni verður einnig veitt innsýn í fyrirbyggjandi þætti í stjórnun og starfsumhverfi sem auka helgun og fyrirbyggja kulnun.

„Þetta eru mjög áhugaverðar niðurstöður, það kom okkur nokkuð á óvart hversu margir telja sig hafa upplifað kulnun og vera í kulnun núna. Það er því gríðarlega mikilvægt að vinnustaðir og stjórnendur þekki hvernig megi fyrirbyggja streitu og kulnun.“ segir Tómas Bjarnason, sviðsstjóri mannauðsrannsókna og ráðgjafar Gallup.

Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er Dr. Arnold Bakker, en hann er einn fremsti vinnusálfræðingur heims og hefur m.a. verið á Thomas Reuter‘s list of The World‘s Most Influential Scientific Minds frá árinu 2014. „Nýlegar rannsóknir sýna að því starfsfólki vegnar best sem hefur frumkvæði og er stöðugt að bæta vinnuaðferðir sínar og vinnuumhverfi. Í erindi mínu mun ég fara yfir hvað stjórnendur geta gert til að stuðla að helgun starfsmanna og koma í veg fyrir kulnun í starfi.“ segir Dr. Arnold Bakker.

„Við hjá Gallup erum virkilega spennt yfir því að fá Bakker til landsins, enda fáir sem hafa jafn yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á þessu sviði. Viðbrögðin hafa verið mjög góð, það stefnir í húsfylli og frábæran dag.“ segir Tómas jafnframt.