Tæpir tveir milljarðar í leiguíbúðir

Í fréttatilkynningu kemur fram að Íbúðalánasjóður hefur ákveðið hverjir hljóta 1.800 milljónir í stofnframlög frá sjóðnum til byggingar svokallaðra leiguheimila.

Þetta eru framlög ríkissjóðs vegan bygginga og kaupa á einum 370 leiguíbúðum víða um land.

Eru íbúðir fyrir námsmenn að þessu sinni í meirihluta.

Á árunum 2016-2022 er áætlað að úthlutað verði framlögum úr ríkissjóði vegna 3.200 íbúða.

Nú er talið að það vanti níu þúsund íbúðir inn á markaðinn. Hér er því verið að bregðast við erfiðu ástandi á húsnæðismarkaðnum.

Leiguheimilin gagnast þeim sem verðhækkanirnar bitna harðast á.

Ríkissjóður og sveitarfélög legg sitt að mörkum til þessara framkvæmda og mun þetta gerbreyta húsnæðismarkaðnum fyrir þá sem verst standa.

[email protected]