Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, tilkynntu í dag um 3,5 milljarða króna úthlutun til uppbyggingar innviða og annarra verkefna á 130 fjölsóttum stöðum í náttúru Íslands og á öðrum ferðamannastöðum vítt og breitt um landið. Úthlutunin nær til næstu þriggja ára og á sama tíma er áætlað að verja 1,3 milljörðum króna sérstaklega til landvörslu.
Frá þessu er greint í sameiginlegri fréttatilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
„Náttúra landsins er gulleggið okkar og við verðum að gæta hennar af alúð. Í dag kynnum við áframhaldandi stórsókn við uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum og náttúruperlum um land allt. Aldrei hefur meiri fjármunum verið varið til slíkrar uppbyggingar en í tíð núverandi ríkisstjórnar og samhliða hefur fengist betri yfirsýn svo hægt er að forgangsraða verkefnum eftir því hvar þörfin er brýnust. Slík vinnubrögð eru góð fyrir alla – ferðaþjónustuna, ríkissjóð og náttúruna sjálfa sem hagnast mest af öllum. Vatnaskil hafa orðið í umhverfisvernd hér á landi,“ segir Guðmundur Ingi.
Í tilkynningunni kemur fram að markmiðið með fjárveitingunni sé að halda áfram þeirri miklu uppbyggingu innviða sem hafin er til verndar náttúru landsins og menningarsögulegum minjum, sem og uppbyggingar ferðamannastaða.
„Ferðaþjónustan er ein af grunnstoðum íslensks atvinnulífs og hún á allt sitt undir því að við varðveitum töfra íslenskrar náttúru. Fyrir ári síðan kynnti ríkisstjórnin markvissa sókn í uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum í náttúru Íslands og sannarlega höfum við náð að lyfta grettistaki. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða og Landsáætlun um innviðauppbyggingu gegna hér lykilhlutverki og saman ætlum við að tryggja að íslensk náttúra og ferðaþjónusta geti blómstrað hlið við hlið,“ segir Þórdís Kolbrún.