Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir að Íslendingar séu eftirbátar nágrannaþjóðanna í netverslun. Hann er á meðal gesta hjá Jóni G. í kvöld og segir að um Íslendinga sé oft sagt að þeir séu tækniþjóð sem tileinki sér fljótt allar tækninýjungar. Því sé hins vegar ekki að fara í netverslun. Af allri verslun á Íslandi fer um 2,9% að jafnaði í gegnum netið en þetta hlutfall er um 10% hjá nágrannaþjóðunum. Svo er komið í Bandaríkjunum að stórar verslunarmiðstöðvar eru núna hálftómar vegna stóraukinnar netverslunar.
Tækniþjóðin eftirbátur annarra í netverslun
Fleiri fréttir
Nýjast