Tæknin olli frestun á frumsýningu

Þátturinn Atvinnulífið hóf göngu sína í gærkvöldi á Hringbraut eftir nokkra mánaða hlé en talsverð eftirvænting hafði ríkt um innihald þáttarins þar sem fjalla átti um þrotabú Sigurplasts og uppgjör við skiptastjóra og helsta lánadrottinn fyrirtækisins.  Þátturinn hætti skyndilega í útsendingu á 13. mínútu líkt og snúru hefði verið kippt úr sambandi.  Hringbraut harmar þau tæknilegu mistök sem áttu sér stað við vinnslu þáttarins og leitaði til þáttastjórnandans, Sigurður K. Kolbeinssonar með skýringar á þessu óheppilega atviki.  Að sögn Sigurðar gerðist eitthvað sem á engan veginn að geta skeð, en skemmd komst í eina af fjölmörgum skrám sem notaðar voru til að myndskreyta þáttinn með þeim hætti að hún uppgötvaðist ekki í yfirfærslu milli framleiðanda og útsendingarstjórnar hjá Hringbraut.  Þetta er nánast eins og oft hefur gerst með krabbamein, að þau finnast ekki við skoðun og uppgötvast eftir á og þá er stundum orðið um seinan.  Sigurður sagðist jafnframt harma þetta en þarna hefði mannshöndin hvergi komið nærri og því lítið annað að gera en að frumsýna þáttinn n.k. þriðjudag 13. febrúar.