Systurnar breiða út boðskapinn

Við Suðurströndina á Seltjarnarnesi stofnuðu tvær systur, þær Guðrún og Jóhanna samlag sem þær nefnda Systrasamlagið og er orðið vel þekkt þeim sem búa í grenndinni og víðar.  Á litlum fimmtíu fermetrum er þar kaffihús, matstofa, heilsubúð. Ilmkjarnaolíur eru nauðsynlegar á hverju heimili og jógaiðkun hér á landi færist nú upp á efra stig, segja þær systur meðal annars. Fólk er farið að tileinka sér indverska speki jógaiðkandans í meiri mæli. Systurnar munu innan tíðar fara í útrás frá Nesinu og niður í miðborg innan skamms og opna þar samlag númer tvö.