Systurnar tvær sem handteknar voru fyrir helgi vegna tilraunar til að kúga fé út úr Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra og fjölskyldu hans töldu sig hafa upplýsingar um fjárhagsleg samskipti ráðherrans og Björn Inga Hrafnssonar vinar hans og aðaleiganda DV.
Systurnar, sem heita Hlín Einarsdóttir og er fyrrverandi unnusta Björn Inga og Malín Brand, blaðamaður á Morgunblaðinu voru handteknar um hádegisbil í Hafnarfirði á föstudag þegar þær ætluðu að sækja þangað tiltekna upphæð sem þær áttu að fá í sinn hlut fyrir kúgunina. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að þær hafi sent bréf heim til Sigmundar Davíðs og krafist þess að hann greiddi þeim þessa tiltekna fjárhæð. Peningana átti Sigmundur Davíð að skilja eftir á ákveðnum stað sunnan Vallahverfis í Hafnarfirði. Þegar Hlín og Malín komu þangað til að sækja peningana handtók lögreglan þær á staðnum. Þær játuðu við yfirheyrslu að hafa sent bréfið og var þeim sleppt að loknum yfirheyrslum.
Hlín Einarsdóttir er fyrrverandi sambýliskona Björns Inga Hrafnssonar, flokksbróður Sigmundar Davíðs, og eiganda Vefpressunnar og DV. Ekki hefur fengist uppgefið hvað fjárkúgunartilraunin snerist um en samkvæmt heimildum RÚV tengist hún fjárhagslegum tengslum Björns Inga og Sigmundar Davíðs. Þetta hefur ekki fengist staðfest hjá lögreglu og þá vildi Björn Ingi ekki heldur tjá sig um málið þegar eftir því var leitað fyrr í dag.
Að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu er rannsókn málsins vel á veg komin og telst það að mestu upplýst. Það verður sent til ríkissaksóknara að rannsókn lokinni sem tekur ákvörðun um framhaldið. Viðurlög við fjárkúgunartilraun af þessu tagi getur varðar allt að sex ára fangelsi.