Systkinin gera upp handtökuna: „Ástvinir Hrafns höfðu áhyggjur af honum“

Systkini Hrafns Jökulssonar þau Illugi Jökulsson og Elísabet Kristín Jökulsdóttir hafa bæði sent frá sér yfirlýsingu vegna frelsissviptingar lögreglunnar á Hrafni sem átti sér stað fyrir um tveimur árum og greint var frá í helgarviðtali Fréttablaðsins í gær.


Fréttablaðið greinir frá þessu.


Elísabet segist sjálf verða að játa að hún hafi átt sinn þátt í handtökunni. „Það voru mistök og ég harma það alla daga, en á móti kemur að ég ætlaðist auðvitað aldrei til þess að það kæmi heil víkingasveit að athuga með hann,“ segir Elísabet jafnframt.

Illugi segir sjálfur að það hafi verið hörmulegt frá fyrstu stund að heyra af því sem gerðist á Brú fyrir tæpum tveimur árum. „Ástvinir Hrafns höfðu áhyggjur af honum, með réttu eða röngu, og báðu þess vegna um að litið yrði til hans.“

Þau segja bæði að þeim hafi aldrei dottið til hugar að víkingasveit yrði kölluð út til að athuga með bróðir þeirra.

„Það sem þar gerðist var augljóslega hvorki í samræmi við beiðni ástvina hans né almennilega lögregluhætti, og allra síst þann mann sem mætti lögreglumönnunum á Brú og var bersýnilega í alla staði til friðs. Ég vona að úr þessu máli verði leyst fljótt og vel þannig að yfirvöldin geti lært af,“ skrifar Illugi meðal annars í yfirlýsingu sinni.


Umfjöllun Fréttablaðsins um málið má lesa í heild sinni hér.