Systkinamisnotkun oft mjög falin

Gerendur kynferðisofbeldis gegn börnum, geta verið konur rétt eins og karlmenn og því er alls ekki rétt að alhæfa um að gerendur kynferðisbrota séu einungis karlmenn.

Þá eru dæmi um systkinamisnotkun oft mjög falin, en flestir gerendur byrja að beita ofbeldinu á unglingsaldri. Þetta kom fram í þættinum Ég bara spyr sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld, en þáttinn má sjá hér á vef stöðvarinnar. Þar sagði Sigríður Björnsdóttir að í flestum tilfellum reyni börn að segja frá misnotkuninni í 8 til 10 skipti áður en brotin komast upp. Það gera þau með alls kyns vísbendingum sem geta verið til foreldra, systkina, vina eða í skóla. Fullorðnir átti sig hins vegar ekki oft á þessum vísbendingum og því taki það börn oft mjög langan tíma að geta loksins sagt alveg frá.

Eins og fram kom í þættinum eru gerendur í flestum tilfellum fólk sem foreldrarnir þekkja og það jafnvel mjög vel. Það er vegna þess að gerendur velja börn sem þeir þekkja sjálfir. Í þættinum voru teknar fyrir spurningar áhorfenda sem sendar voru til upplýsingaveitunnar Spyr.is og mörg ráð gefin til foreldra. Sem dæmi voru góð ráð um hvernig er hægt að ræða við börnin um einkastaðina, hvernig er hægt að tala um gerendur án þess að hræða þau gagnvart ættingjum og vinum og fleira.

Sigríður sagði ekki jafnaðarmerki á milli þess að gerendur hafi verið þolendur sem börn, þótt það væri algengt. Hún sagði mikilvægt að samfélagið færi að huga betur að leiðum fyrir gerendur að sækja sér aðstoð. Oft væru gerendur að glíma við hvatir sem þeir vildu sporna við, en vissu ekki hvert væri hægt að leita eftir aðstoð. Þetta yki þá líkurnar á brotum gegn börnum.

Fyrir barn sem er misnotað er mikilvægt að geta sagt frá til að ná frekar bata síðar meir. Vanlíðan og jafnvel sektarkennd getur annars haft áhrif árum saman og jafnvel gert það að verkum að sem fullorðið fólk, ná þolendur ekki að tengjast börnunum sínum nægilega vel.

Ég bara spyr er endursýndur í allan dag og um helgina. Umsjónarmaður þáttarins er Rakel Sveinsdóttir.