Tveir bandarískir tundurspillar vopnaðir Tomahawk flugskeytum eru hafðir á til taks Miðjarðarhafi auk orustuflugvéla og kafbáta verði ákveðið að gera alvöru úr hótunum Trumps Bandaríkjaforseta um hefndarárás gegn Sýrlandsstjórn vegna eiturefnaárásarinnar í Douma.
Komið hefur í ljós að Twitter-hótun forsetans um árásina kom ráðgjöfum hans í opna skjöldu í gærmorgun, enda ekki búið að sammælast um aðgerðir við lykil bandamenn Bandaríkjanna, svo sem Frakka og Breta.
Öryggissérfræðingar fóru yfir kosti í stöðunni á fundum í Hvíta húsinu í gær. Haft var eftir James Mattis vanrnarmálaráðherra, að enn væri verið að safna upplýsingum um árásina í Douma, en herinn væri að öðru leyti tilbúinn ef forsetinn gæfi merki um árás.
Theresa May hefur kallað ríkisstjórn sína saman til aukafundar um málið í dag. Samkvæmt fréttum BBC munu ráðherrarnir styðja hana ákveði hún að taka þátt í árás í Sýrlandi án sérstaks samþykkis breska þingsins.