Bandaríkin hafa ákveðið að ráðast á sýrlenska flugherinn. Á sjötta tug stýriflauga var í nótt skotið á bækistöð sýrlenska flughersins utan við borgina Homs í vesturhluta Sýrlands. Rússlandi var sagt frá því að árásin væri yfirvofandi áður en flaugunum var skotið á loft. Tvö bandarísk herskip sem stödd eru á austurhluta Miðjarðarhafsins skutu flaugunum.
Hvort Bandaríkin láta þessa einu árás nægja er ekki vitað á þessir stundu. Donald J Trump hitti fyrr í vikunni konung Jórdaníu en hann hefur lengi hvatt Bamdaríkin til að leggja til atlögu gegn sýrlenskum stjórnvöldum. Þessi árás markar hugsanleg upphaf þess að Bandaríkin munu nú kalla eftir því að bandamenn Bandarikjanna leggi til atlögu gegn sýrlenskum stjórnvöldum.