Sýran kallaði fram klikkaða vænisýki

Skáldið og lífskúnstnerinn Bjarni Bernharður kemur sannarlega til dyranna eins og hann er klæddur í einstaklega persónulegu og berorðu viðtali í Mannamáli vikunnar þar sem hann lýsir því hvernig stjórnlaus geðklofinn tók af honum völdin með hræðilegum afleiðingum.

Í þættinum, sem nú er hægt að sjá hér á vef stöðvarinnar, lýsir hann af miklu hispursleysi erfiðri æsku sinni austur á Selfossi þar sem hann flúði inni í hlutverk trúðsins til að umbera stríðnina og umtalið, en hann þótti strax vera skrýtinn og öðruvísi en aðrir krakkar í plássinu, nánast útskúfaður af eigin foreldrum sem höfðu hlaðið niður slíkri ómegð að ekki varð við neitt ráðið. Hann segir pabba sinn ekki hafa haft neitt álit á synininum og mamma hans hafi spáð honum refilsstigum og tukthúsmennsku á fullorðinsárum.

Og það gekk raunar eftir. Eftir sjómennsku og harkið á hafi úti hélt hann til Danmerkur og lagðist í sýruna til að reyna að ná einhverri hugarró, að því er hann segir sjálfur, en á endanum kippti hún undan honum fótunum; afleiðing stöðugra sýruflippa birtist honum í alvarlegum geðklofa sem átti eftir að fanga Bjarna næstu árum, með þeim hræðilegu afleiðingum að á endanum varð hann leigusala sínum í Reykjavík að bana sakir þessarar heiftarlegrar vænisýki sem braust fram með stjórnlausu ofbeldi og ranghugmyndum; hann var algerlega sannfærður um að maðurinn væri að njósna um sig allan liðlangan daginn og ætti þar af leiðandi allt illt skilið.

Það er með átakanlegum hætti sem Bjarni lýsir ofsóknarbrjálæðinu sem leiddi til þessa skelfilega morðs - og það er raunar ekki fyrir viðkvæmar sálir að hlusta og sjá hann lýsa því hvernig hann, sturlaður maðurinn, gekk í skrokk á manninum sem hann varð að aldurtila og svívirti vettvang glæpsins.

Á seinni árum hefur hann öðlast nokkra sálarró, geðklofaköstin eru að baki, skáldskapurinn hefur aldrei verið meiri, en eftir situr samt brotin sál sem bíður þess ekki bætur að hafa verið útskúfuð, hædd og hrakin þegar á barnsaldri.

Viðtalsþátturinn Mannamál er frumsýndur öll fimmtudagskvöld klukkan 20:30.