Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, segir Jón Baldvin Hannibalsson sýna algjöran skort á sómakennd með framgöngu sinni í kjölfar fjölda ásakana um kynferðisbrot. Hún ritaði færslu í lokaðan MeToo Facebook, sem var stofnaður til að halda utan um ásakanirnar, þar sem hún rekur söguna af því þegar hún heyrði af óviðeigandi bréfaskrifum Jóns Baldvins til Guðrúnar Harðardóttur, systurdóttur Bryndísar Schram.
„Ástæðan fyrir því að ég segi þessa sögu núna er sú að hún varpar ljósi á þann algera skort á sómakennd sem einkennir alla framgöngu JBH. Honum finnst sjálfsagt að grípa til allra tiltækra meðala til að verja sjálfan sig. Allt frá því mál Guðrúnar kom inn á borð saksóknara hefur JBH rakið það til „fjölskylduharmleiksins“ og síðan hefur hann klappað þann stein í sífellu jafnvel þó að þar með sé hann að skrumskæla líf dóttur sinnar og dótturdóttur og gera það að fjölmiðlaefni.“
Hún hrósar þeim konum sem hafa stigið fram og segir Aldísi Schram og Guðrúnu vera meiri hetjur en þær geri sér grein fyrir.
Ingibjörg vildi Jón Baldvin ekki á lista
Því hafði verið velt upp að Jón Baldvin tæki heiðurssæti á lista Samfylkingarinnar í aðdraganda þingkosninga árið 2007 og að hann væri þar hugsanlegt ráðherraefni. Jón Baldvin var náinn bandamaður Ingibjargar þegar hún tók við sem formaður flokksins árið 2005.
Í færslunni segir Ingibjörg frá því að hún hafi lesið bréfin til Guðrúnar. Hörður, faðir Guðrúnar, hafði sagt henni alla söguna og látið hana fá afrit af bréfunum. Ingibjörg segir svo frá því hvernig hún hafi tjáð Jóni Baldvini að hún vildi ekki hafa hann lengur á lista vegna þessa. Hann hafi brugðist ókvæða við og síðar fullyrt opinberlega að flokksforysta Samfylkingarinnar hafi bolað sér út. Ingibjörg segir hann hafa málað þetta upp þannig þar sem hann vissi að hún gæti ekki tjáð sig opinberlega um málefni Guðrúnar.