Leiksýning í hættu vegna bjúgna!

Annað kvöld kl. 20 verður sýndur á Hringbraut skemmtilegur  þáttur af Lóa og lífið en Lóa fær til sín samstarfskonurnar og mágkonurnar þær Rakel Garðarsdóttur og Nínu Dögg Filippusdóttur.

Þær segja frá samstarfi sínu, þá sérstaklega innan Vesturports. Þær segja meðal annars frá því þegar Vesturport fór með sýningu sína til Mexíkó og leikmynd þeirra var stoppuð í tollinum vegna íslenskra bjúgna! Í kjölfarið varð mikil seinkun á undirbúningi sýningarinnar og mátti muna litlu að seinka þyrfti og jafnvel fresta sýningunni í Mexíkó.

Hér er sýnishorn úr þættinum en hann verður einnig endursýndur kl.22 annað kvöld, á miðvikudag og um næstu helgi.