„Það er löngu tímabært að setja ramma utan um notkun á þessari vöru, rafrettum. Það hefur verið þannig hingað til að þetta hefur verið selt í raun og veru ólöglega, vegna þess að nikotín í þessum vökva er skilgreint sem lyf skv. íslenskum lögum. Til þess að selja lyf þarf maður lyfsöluleyfi og það hefur ekki verið fyrir þetta.“ segir Karl Andersen, stjórnarformaður Hjartaverndar og prófessor í hjartalæknisfræði við læknadeild HÍ, um ný lög um rafrettur sem taka gildi á morgun. Karl segir Hjartavernd fagna lögunum.
Karl er gestur Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld, þar sem hann ræðir þessi nýju lög, rafrettur og tóbaksreykingar.
Markmið laganna er að draga úr heilsutjóni og dauðsföllum af völdum tóbaks. Fjölmargar umsagnir bárust um frumvarpið á sínum tíma, m.a. frá Hjartavernd og Félagi atvinnurekenda. Í umsögn FA segir að lýðheilsurök séu fyrir því að notkun rafsígarettna afstýri reykingum og heilsutjóni. „Það eru margir sem hafa notað rafrettur til þess að hætta að reykja og mörgum hefur tekist það og það er hið besta mál. Hins vegar vitum við að u.þ.b. helmingurinn af þeim sem nota rafrettur til þess að hætta að reykja halda áfram að reykja samhliða, það eru til tölur um það,“ segir Karl og bætir við að ekki sé búið að sanna það með óyggjandi hætti að rafrettur dragi úr heilsutjóni, til þess þurfi um 20 ár til viðbótar til að meta hvaða áhrif þær hafi á reykingar og heilsufar.
„Það er vissulega líklegt og mjög sennilegt að rafrettur séu miklu minna skaðlegar heldur en tóbaksreykur enda er þessi samanburður þannig að það er ekki til neitt í heiminum sem er eins skaðlegt og reyk tóbak. Það deyja u.þ.b. 6,5 milljón manna á ári úr tóbaksreykingum í heiminum. Það er ekki hægt að finna neysluvöru sem er seld opið sem veldur eins miklum skaða og tóbak,“ segir Karl um skaðsemi tóbaksreykinga.
Lögin um rafrettur eru liður í tilskipun frá Evrópusambandinu en Ísland gengur þó nokkru lengra með svokölluðu sýnileikabanni. Karl segir Hjartavernd hafa áhyggjur af börnum og unglingum enda um lokkandi vörur að ræða. Hjartavernd mæli því með sýnileikabanni til að reyna að stemma stigu við því að rafrettur verði tískuvara. Börn og ungmenni eigi enda alltaf að fá að njóta vafans þar sem við vitum ekki nógu mikið ennþá um mögulega skaðsemi rafrettna.
Nánar er rætt við Karl í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.