Undir viðmiðunarmörkum

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur tók sýni úr sjónum við Faxaskjól og staðafesta niðurstöður að magn saurgerla er undir viðmiðunarmörkum. Eftirlitið ítrekar það sem áður hefur komið fram að engin hætta er á því að mengun berist að útivistarsvæðinu í Nauthólsvík þegar neyðarlúgur eru opnar í fráveitustöðinni í Faxaskjóli. Áfram verður mælt.

Nánar www.reykjavik.is

 

[email protected]