Hafþór Sævarsson, sonur Sævars Ciesielski segist ekki hafa áhuga á að ræða niðurstöðu Hæstarréttar í endurupptökumálinu á Guðmundar- og Geirfinnsmálinu og vísar til skrifa sinna þar sem hann gerir grein fyrir afstöðu sinni.
„Við berjumst fyrir heildaruppgjöri en ekki sýndarréttarhöldum og sýknu með einu pennastriki án alvöru réttarhalda,“ hefur verið haft eftir Hafþóri.
Hafþór sem er löglærður lét afstöðu sína til málaferlanna skýrt í ljós í grein sem hann birti á visir.is undir fyrirsögninni „Heildaruppgjör“ en í greininni telur hann málaferlin sem nú er lokið „sýndarréttarhöld“.
Greinin birtist byrjun árs á visir.is, 16.janúar 2018 og er hér í heild sinni:
Sýndarréttarhöld Guðmundar- og Geirfinnsmála munu ekki ryðja veginn fyrir það heildaruppgjör sem þarf að fara fram. Feluleikir endast ekki til lengdar þegar sagan er öll kirfilega skjalfest, smáatriði staðfest og nöfn undirrituð. Hið mikla skjalafals og leikverk Guðmundar- og Geirfinnsmála er skráð á tiltekna starfsmenn stjórnskipunarinnar. Þá varpa skráðar dagsetningar ljósi á tímalínu sem upplýsir söguna í heild.
Nú þegar endurupptaka að hluta á þessum málum mjakast til Hæstaréttar, stendur valið milli uppgjörs og feluleiks. Ákæruvaldið ætti með réttu að fara fram af krafti, af öllu því afli sem það getur fram borið og benda á allt sem talið er að gæti hjálpað til staðfestingar dómnum. Dómsmorðinu gamla. Það mun hins vegar ákæruvaldið aldrei þora. Því það myndi opinbera hversu vitfirrtur sá málstaður er, að fara fram á sekt, og hefur alltaf verið. Málstaður sá, að fara fram á sekt í þessu máli, er svo veikburða að það má færa skynsamleg rök fyrir því að sjálfu réttaröryggi landsins stafi beinlínis hætta af því að gera þeim málstað opinber skil.
Ákæruvaldið mun því aldrei þora, því það sýnir opinbera starfsmenn misnota mannshvörf. Saklaus ungmenni voru valin af mönnum sem vissu allt um sakleysi þeirra. Pyntuð yfir margra mánaða tímabil í gæsluvarðhaldi, leidd í margar gildrur og súrrealískar skýrslutökur. Látin segja eitt og svo annað, ýmist dópuð, hrædd eða lamin. En það var ekki einu sinni nóg til að dæma þau sek! Nei, það þurfti að framleiða skáldaðar forsendur í dómnum sjálfum til að sakfella!
Ákæruvaldið mun því aldrei þora, vegna þess að þá kæmi í ljós leikritið í allri sinni dýrð. Hverjir stóðu að handritsgerð þessara mála, hverjir hjálpuðu til við sviðsetningu. Hvaða leikmenn voru fengnir til verksins og hvaða hundar valdir. Hverjir framleiðendur voru og í hvaða tilgangi leikurinn var gerður: Árásin á Ólaf Jóhannesson, fyrrum forsætisráðherra Íslands. Ólafur stóð hana af sér, reið með björgum fram og samdi um Karl Schütz. Þjóðverji sá er háttsettasti ræstitæknir sem forseti íslenska lýðveldisins hefur nokkru sinni hengt á stórriddarakross.
Í staðinn mun ákæruvaldið fara fram á sýknu, því þá þarf ekki að skoða eitt eða neitt! Ekkert afl og engin mótstaða, gott og vel. Sýndarréttarhöld Guðmundar- og Geirfinnsmála munu ekki hindra þá opinberun sem heildaruppgjörið krefst. Þá skiptir engu hvort alvöruréttarhöld ryðja veginn fyrir fram, eður ei. Faðir minn barðist fyrir því að vera hreinsaður af þessum málum. Hann fékk aldrei að lifa þann dag. Í dag berjumst við fyrir heildaruppgjöri. Sögunni af því hvernig tilteknir starfsmenn stjórnskipunarinnar unnu gegn stjórnskipuninni sjálfri. Sögunni af því hvernig stjórnmálaöfl sameinuðust í misnotkun á mannshvörfum. Sögunni af réttar- og dómsmorði: Sannleikann sem þarf að gera upp.
Þann 24.febrúar 2017 hafði Hafþór þó áður skrifað þetta á facebook síðu sína:
Pabbi, loksins er komið að því!
Við systkinin getum loksins fagnað því að mannorð þitt verður hreinsað.
Faðir okkar barðist alla ævi fyrir sannleikanum í þessum málum og að sakleysi hans yrði viðurkennt. Mannshvörf tveggja manna voru misnotuð af rannsóknaraðilum.
Við vildum óska þess að pabbi væri með okkur í dag en svo er því miður ekki.
Allt frá því að við munum eftir okkur hafa þessi mál litað tilveru okkar. Það er ekki hægt að útskýra með orðum þá upplifun að hafa fæðst inn í þetta ranglæti.
Endurupptökunefnd fellst á að Guðmundar- og Geirfinnsmál, sem aldrei voru dómtæk mál, verða tekin upp að nýju. Þá fellst nefndin ekki á að taka upp rangar sakargiftir á þessum tímapunkti; þær falla um sig sjálfar með sýknudómi.
Kærar þakkir, þið öll sem hafið stutt okkur allan þennan tíma.
Til hamingju pabbi, barátta þín og seigla hefur loksins skilað sér í endurupptöku.