Hæstiréttur staðfesti í dag sýknudóm í máli Guðmundar Spartakusar Ómarssonar gegn Sigmundi Erni Rúnarssyni sjónvarpsmanni og dagsrkrárstjóra Hringbrautar.
Guðmundur stefndi Sigmundi vegna ummæla sig í Hringbrautarþætti á þá lund að hann væri talinn valdamikill fíkniefnasmyglari í Suður-Ameríku og sagður sigla undir fölsku vegabréfsflaggi. Guðmundur krafðist tveggja milljóna króna í bætur og að níu ummæli um sig yrðu ómerkt.
Sigmundur Ernir neitaði bótakröfunni og í sýknudómnum er Guðmundi auk þess gert að greiða 700 þúsund krónur vegna málskostnaðar Sigmundar Ernis.
Í dómi Hæstaréttar segir að umfjöllun Hringbrautar hafi byggt á frétt RÚV um málið, eins og tekið hafi verið fram í þættinum. Í umfjöllun Hringbrautar sé fjallað um að Guðmundur Spartakus hafi verið sagður háttsettur í stórtækum eiturlyfjahring. Hæstiréttur segir í dómi sínum að Hringbraut hafi ekki haft neina ástæðu til að draga í efa að RÚV og paragvæski fjölmiðillinn ABC Color hefðu gætt grundvallarreglna við gerð frétta sinna. Með hliðsjón af framsetningu fréttarinnar séu engin efni til að verða við kröfum Guðmundar Spartakusar.
Aðalmeðferð í öðru meiðyrðamáli - þar sem Guðmundur krefst tíu milljóna króna bóta vegna skrifa og ummæla Atla Más Gylfasonar blaðamanns á Stundinni - fór einnig fram í dag. Áður hafði Guðmundur gert sátt við Ríkisútvarpið um að RÚV greiddi honum 2,5 milljónir króna án þess að RÚV játaði sök. Og fréttirnar stóðu óbreyttar.