Trausti Hafliðason, ritstjóri Viðskiptablaðsins, auk útgáfufélagsins Myllusetur ehf., var í dag sýknaður í meiðyrðamáli Lúðvíks Bergvinssonar, lögmanns og fyrrverandi þingmanns Samfylkingarinnar.
Lúðvík vildi að þrjú ummæli um hann í nafnlausa dálknum Óðinn frá því í fyrra yrðu dæmd ómerk og hann fengi þrjár milljónir króna í bætur. Fjallað er um málið á vef mbl.
Í dálknum var fjallað um störf Lúðvíks sem „óháðs kunnáttumanns“ fyrir Samkeppniseftirlitið í tengslum við sáttar Festis og N1. Fjallað var um tengsl Lúðvíks og forstjóra ríkisstofnunarinnar og 33 milljóna króna greiðslur fyrir störf hans.
Ummælin sem Viðskiptablaðið mátti segja voru:
A: „Við blasir að efasemdirnar um Lúðvík voru ekki minni, sérstaklega vegna vináttunnar við aðstoðarforstjórann. Því jafnvel þó svo hann hafi þar hvergi komið nærri að nokkru leyti, þá leit það ekki þannig út og burtskýringin kom ekki fyrr en eftir að efasemdirnar höfðu komið fram á opinberum vettvangi. Sem sagt um seinan. Fyrir þá vini báða, Lúðvík og Ásgeir, Samkeppniseftirlitið og góða stjórnsýslu.“
B: „Þessar fréttir af Samkeppniseftirlitinu og óheyrilegum kostnaði við eftirlit með samruna eru án efa tilefni í einn safaríkan Kveiks-þátt. Óðinn hlakkar raunar til að sjá Helga Seljan rannsaka þessa hliðstæðu. Hann getur varla látið svona tækifæri fram hjá sér fara. Þeim virðist svipa saman hjörtunum, í Namibíu og Borgartúni.“
C: „Öll skynsemis- og réttlætisrök virðast hníga að því að Festi kæri kunnáttumanninn fyrir tilhæfulausa reikninga.“
Í A og C-lið telur dómurinn að þau séu sett fram sem huglægt mat, engar staðhæfingar sé um að ræða. Þá sé verið að fjalla um mál sem varði almenning. Í B-lið þá teljist ekki víst að um sé að ræða Lúðvík.
Lúðvík var dæmdur til að greiða 1,5 milljónir króna í málskostnað.