Sýkna ástu kristínar stendur

Ríkissaksóknari hefur ákveðið að áfrýja ekki til Hæstaréttar Íslands sýknudómi yfir Ástu Kristínu Andrésdóttur hjúkrunarfræðingi og Landspítala fyrir manndráp af gáleysi, að því er fram kemur á vefsíðu embættisins.
 
Sýknudómur í málinun var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur níunda þessa mánaðar og þótti mörgum, ef miðað er við umræðu á samfélagsmiðlum, að þar væri nógu langt gengið. Málið er enda án fordæma, því þetta var í fyrsta skipti sem spítalinn og starfsmaður hans eru ákærðir á grundvelli hegningarlaga.
 
Fjölskipaður héraðsdómur sýknaði Ástu Kristínu og Landspítalann af öllum ákæruatriðum. Bótakröfum var vísað frá og allur málskostnaður greiðist úr ríkissjóði. 

Að því er fram kom í ákæru kafnaði sjúklingur á gjörgæslu skömmu eftir að hann var tekinn úr öndunarvél. Í ákærunni var Ástu Kristínu gert að sök að hafa láðst að tæma loft úr belg barkaraufartúbu þegar tengingu við öndunarvél var skipt út fyrir talventil. Sjúklingurinn hafi því aðeins getað andað að sér lofti, en ekki frá sér, og lést skömmu síðar.