Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) kannar nú hversu meðvitaðir evrópskir neytendur eru um sýklalyfjaþol og hættuna sem stafar af bakteríum sem eru ónæmar fyrir sýklalyfjum. Matvælastofnun eða MAST hvetur neytendur til að taka þátt í könnuninni sem aðgengileg á síðunni hér. Íslenskir neytendur geta nú lagt sitt af mörkum til könnunarinnar.
Könnunin er opin til 30. apríl 2018. Hún er á ensku og er hægt að nota orðabanka og þýðingarvélar við þýðingar á fagmáli sem finnst á heimasíðu MAST.
Meðvitund neytenda um hættur í matvælum er mikilvæg í auknu öryggi matvæla. Þegar kemur að hættum vegna vaxandi sýklalyfjaþols baktería í dýrum og mönnum, þá koma fleiri þættir við sögu meðal Evrópubúa s.s. meðvitund um ábyrga notkun sýklalyfja.