Sýklalyfjanotkun barna og ungmenna á Íslandi hefur dregist talsvert saman á síðustu árum að því er fram kemur í nýrri rannsókn sem kynnt er í dag á vef Landlæknisembættisins.
Þar segir að sóttvarnalæknir hafi gefið út skýrslu um sýklalyfjanotkun og sýklalyfjanæmi baktería í mönnum og dýrum á Íslandi á árinu 2014. Þetta sé þriðja árið í röð sem fjallað sé um notkun og næmi í bæði mönnum og dýrum. Sambærileg skýrsla um sýklalyfjanotkun í mönnum hafi verið gefin út í nokkur ár þar á undan.
\"Helstu niðurstöður skýrslunnar eru að heildarnotkun sýklalyfja í mönnum hefur minnkað lítillega frá árinu 2012. Hins vegar hefur notkunin minnkað talsvert hjá börnum yngri en 5 ára, en á árinu 2011 hófst almenn bólusetning hjá ungbörnum hér á landi gegn pneumókokkum og má leiða líkum að því að bólusetningin hafi stuðlað að minnkandi notkun sýklalyfja hjá þessum hópi og einnig lækkandi sýklalyfjaónæmi hjá ákveðnum bakteríum,\" segir á vef embættisins.
Sýklalyfjanotkun í dýrum hefur einnig farið minnkandi frá árinu 2010 og er hún ein sú minnsta hér á landi innan Evrópu.
Sérstakar áhyggjur vekur hins vegar vaxandi ónæmi iðrabaktería hjá mönnum fyrir breiðvirkum sýklalyfjum sem á að vera hvatning innan heilbrigðiskerfisins til skynsamlegrar sýklalyfjanotkunar hér á landi svo sporna megi við þessari þróun.
Skýrslan var unnin í samstarfi við Lyfjastofnun, Landspítala og Matvælastofnun undir ritstjórn Þórunnar Rafnar Þorsteinsdóttur.