Samtök verslunar og þjónustu fagna nýútkominni skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla íslands um nauðsyn aukinnar samkeppni á mjólkurvörumarkaði; brýnt sé orðið að lækka tolla og afnema undanþágur til að bæta hag alls almennings.
Samtökin segja úttekt Hagfræðistofnunar sem hringbraut.is fjallaði um í gærdag vera hlutlausa og faglega - og endurspegla á margan hátt gagnrýni samtakanna á síðustu árum um staðnað framleiðslukerfi: \"Að mati SVÞ er mikilvægt að virkri samkeppni verði komið á varðandi markað með mjólkurvörur og að starfsemi fyrirtækja á þessu sviði verði, líkt og önnur starfsemi hér á landi, veitt samkeppnislegt aðhald með því að vera undirorpin ákvæðum samkeppnislaga´,\" segir í tilkynningu SVÞ.
Samtökin telja það afar óheppilegt að löggjafinn undanþiggi einn hagsmunahóp ákvæðum samkeppnislaga á meðan önnur starfsemi hér á landi þrífist undir ströngu eftirliti samkeppnisyfirvalda. Að mati SVÞ er hér um að ræða sérhagsmunagæslu stjórnvalda gagnvart hinu innlenda landbúnaðarkerfi sem eingöngu þjónar takmörkuðum hópi afurðarstöðva á kostnað heildarhagsmuna neytenda og gengur um leið gegn markmiði samkeppnislaga.
Í tilkynningunni segir jafnframt: \"SVÞ taka undir það sem fram kemur í skýrslu Hagfræðistofnunar að óumdeilt er að breytingar á núverandi kerfi, m.a. með niðurfellingu á innflutningskvótum á landbúnaðarvörum, munu leiða til ávinnings fyrir innlenda neytendur og stuðla að aukinni samkeppni hér á landi með landbúnaðarvörur.\"