SVT tók viðtal við Sigmund Davíð Gunnlaugsson þá forsætisráðherra Íslands.
Aldrei hafa fleiri horft á Kastljós RÚV en sunndaginn 3.apríl árið 2016 þegar sýndur var þáttur Jóhannesar Kr. Kristinssonar um Panama-skjölin og tengsl íslenskra stjórnmálamanna við fyrirtæki í skattaskjólum.
Um 120 þúsund manns ku hafa horft á þáttinn.
Sigmundur Davíð hefur ítrekað gagnrýnt hvernig SVT stóð að viðtalinu sem hann kallaði \"...ótrúlega árás...\"
Þetta hafa forsvarsmenn sænska þáttarins varið.
Haft er eftir Nils Hanson ritstjóra þáttarins að það hafi verið nauðsynlegt að fá Sigmund Davíð í viðtalið á fölskum forsendum til að afhjúpa hræsni Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.
Þetta hafi því verið eina raunhæfa leiðin til að fá sannleikann fram.
Nils Hanson segir:\" Viðbrögð hans við spurningum okkar staðfestu greinilega að hann hafði haldið þessum upplýsingum leyndum.\"
Nánar www.ruv.is www.svt.se www.svtplay.se