Svört starfsemi eykst í ferðaþjónustu

Svört atvinnustarfsemi í ferðaþjónustu er talin vera á meðal skýringa á því að þótt erlendu ferðafólki hér á landi fjölgi ár frá ári þá hafa tekjur sem ríkið hefur af hverjum og einum túrista dregist saman.

Á þetta er bent í úttekt Markaðarins í dag þar sem rætt við er við Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóra Alþýðusambands Íslands, en hann segir vandann í þessum efnum hafa aukist með meira umfangi ferðaþjónustunnar: \"Kennitöluflakk þekktist umtalsvert í ferðaþjónustunni, einkum þegar kemur að veitinga- og gistihúsageiranum,\" segir Halldór og bætir við: \"Síðan þekkjum við það að ferðaþjónustufyrirtæki greiði ekki laun og hafi önnur starfskjör ekki í samræmi við kjarasmamninga.\"

Halldór segir við Markaðinn að stjórnvöld séu ekki einasta úrræðalaus þegar kemur að svartri atvinnustarfsemi heldur beinlínis viljalaus til verka. Hér á landi sé ekki áhugi á að nota sömu meðul og helst hafi virkað erlendis á kennitöluflakk.

Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins hvetur í úttektinni til öflugs eftirlits af hálfu skattsins, en skattkerfið sé um margt flókð og þar megi gera úrbætur á sama tíma og eftirlitið verði hert.