Skýrsla Innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar um verklegar framkvæmdir og innkaupamál sýnir að svið innan Reykjavíkurborgar hafa ekki verið að fara eftir reglum borgarinnar. Í ljós kemur að framkvæmdir sem skrifstofa eigna og atvinnuþróunar bar ábyrgð á fóru ítrekað fram úr fjárheimildum verkefna sem hún bar ábyrgð á. Skrifstofan bar meðal annars ábyrgð á framkvæmdum á Bragganum. Hrólfur Jónsson var skrifstofustjóri þar en hann hefur látið af störfum.
Segir í skýrslu Innri endurskoðanda að kostnaðaráætlanir vegna eftirlits með mannvirkjagerð var í öllum tilfellum vanáætluð og fjöldi vinnustunda fór langt fram úr áætlun sem mætti rekja til ónógs undirbúnings á forhönnunarstigi. Einnig kemur fram að samanlögð fjárhæð kaupa við ákveðin fyrirtæki hafði náð í mörgum tilfellum þeirri upphæð sem gerir kröfu um að þau kaup fari í útboð. Bendir Innri endurskoðandi á að svona vinnubrögð auki hættuna á misferlum.
Innri endurskoðandi bendir sérstaklega á að þar sem útboð og rammasamningar hafi verið gerðir hafa margar framkvæmdir verið undir kostnaðaráætlun, en þar sem það er ekki gert virðast þær fara vel framúr öllum áætlunum sem gerðar voru.