Svöng skólastelpa - mannúðin brást

Horft yrði sérstaklega famhjá því í undantekningartilfelli ef nemandi sem ekki væri í mataráskrift vildi á öskudegi eða við aðrar sérstakar aðstæður taka þátt í pizzuveislu í eigin skóla, samkvæmt upplýsingum sem Hringbraut hefur aflað innan skóladeildar Akureyrarbæjar. Rými fyrir mannúð í skólakerfinu þurfi alltaf að vera fyrir hendi þótt að jafnaði gili reglur um að mataráskrift skuli skipulögð með fyrirvara.

Hringbraut leitaði viðbragða Akureyrarbæjar og fleiri sveitarfélaga til að kanna hvort slys eins og það sem kom upp í Fellaskóla í gær gæti orðið víðar. Akureyrarbær hefur gefið svör en önnur sveitarfélög ekki. Borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, er reiður eftir að hafa lesið fréttina um að stúlka, nemandi við Fellaskóla, fékk ekki að njóta öskudagsins með því að gða sér á pizzum með skólafélögum af því að hún var ekki í matarárskrift. Gilti einu þótt hún væri með pening með sér og ræddi við skólastjóra Fellaskóla. Skólastjórinn neitaði erindi hennar eftir því sem fram hefur komið í réttum.Visir.is greindi fyrst frá málinu.

Fulltrúi skóladeildar á Akureyri segir í svari við fyrirspurn Hringbrautar að það hefði ekki verið hægt að taka viðð greiðslu fyrir eina staka máltíð, en hægt hefði verið að rukka síðar. Ávallt verði að vera pláss fyrir mannúð í kerfinu þegar um ræði jöfnuð barna.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir vegna málsins:

“Ég skipti ekki oft skapi en viðurkenni það fauk hressilega í mig við að lesa þessa frétt í morgun. Svona gerir maður ekki. Það hefur verið skýr sýn og stefna borgarinnar að engum sé vísað úr matarröðinni, hvorki vegna efnahags né annarra ástæðna. Þetta hefur líka ítrekað komið fram í upplýsingum úr skólunum að þannig sé á málum haldið. Ég tek þetta sérstaklega nærri mér því Fellaskóli hefur verið í stórsókn undanfarin ár og ég er mjög stoltur af því starfi og árangri sem starfsfólk og stjórnendur, nemendur og fjölskyldur þeirra hafa skilað. Við eigum að skapa samfélag fyrir alla og þar sem allir eru með. Það er sérstaklega mikilvægt í skólunum. Ef þetta er vafamál í einhvers huga þá eigum við að hnykkja á því”

Dagur hefur óskað formlega eftir skýringum á þessum fréttum frá Skóla- og frístundasviði, enda sé þjóðinni brugðið að lesa um þessa mismunun.