Svöng og niðurlægð vegna fátæktar

Á sama tíma og forsætisráðherra landsins hefur hrökklast frá völdum eftir að uppvíst varð að hann geymdi fé sem nemur meira en milljarði íslenskra króna í félagi í skattaskjóli, á sama tíma og fjármálaráðherra landsins fær engan frið fyrir fréttamönnum, minnihlutanum og drjúgum hluta þjóðarinnar, þar sem 22.000 manns mótmæltu ójöfnuði og spillingu á Íslandi, hefur Björk Sigurgeirsdóttir, íbúi á Akureyri, sent öllum bæjarfulltrúum bæjarins bréf þar sem hún greinir frá því að tekjur sem hún fái sem einstæð móðir til framfærslu hjá bænum dugi aðeins fyrstu viku hvers mánaðar og varla það. Strax í upphafi mánaðar nú sé svo komið að hún geri ekki staðið straum af lækniskostnaði. Hún segist niðurlægð og spurningar vakna um líðan barnsins hennar

\"Í gær var ég hjá lækni en gat ekki borgað fyrir mig þar sem ég fékk synjun á kortið. Ég átti sem sagt ekki þessar krónur. Í gær var sjötti dagur mánaðarins. Í síðasta mánuði gerðist þetta þann fimmta. Ég er á framfærslu hjá Akureyrarbæ, með 154þús. í tekjur. Barnið mitt er á framfærslu hjá mér, hann fær ekkert,\" skrifar Björk.

Fram kemur í bréfi hennar að í næstu viku fari drengurinn hennar að Reykjum með skólanum sínum ef hún fær samþykkt frá Akureyrarbæ að hann fái styrk til þess \"og ef einhver aumkar sig yfir hann og fer með honum að versla vasaljós og regnföt og gefur honum einhverjar krónur til ferðarinnar\" eins og fram kemur í bréfinu sem Björk hefur sent afrit af til blaðamanns Hringbrautar. \"Ljósi punkturinn er að hann þarf ekki að vera svangur þá vikuna því matur er innifalinn,\" segir Björk.

Í bréfinu kemur fram að Björk hafi ákaflega hógværan heimilisrekstur, heildarkostnaður vegna húsnæðis, internets/síma og hita/rafmagns sé ekki nema um 115 þúsund. \"Þá á ég eftir tæp 40 þúsund til að standa straum af öllu öðru, lækniskostnaði, lyfjakostnaði og sjúkraþjálfun (samtals um 12.000kr. það sem af er þessum mánuði), mat og öðrum nauðsynjum.\" Það sé því nánast ekkert eftir til að bíta og brenna eftir því sem fram kemur í bréfinu:

\"Í upphafi þessa mánaðar verð ég að viðurkenna að ég leyfði mér þann lúxus að kaupa mér eina flík á 12.900kr. fyrsta flíkin í umtalverðan tíma sem ég fékk ekki notaða af einhverjum öðrum. Þá eru, eða réttara sagt voru, eftir um 15.000kr. til að standa straum af öllum mat og öðrum kostnaði heimilisins þennan mánuðinn. Þessar krónur eru farnar í dag,\" segir Björk.

Ákall hennar til bæjarfulltrúa Akureyrar er eftirfarandi: \"Kæri bæjarfulltrúi, ég hef velt því lengi fyrir mér hvort ég eigi að réttlæta fyrir þér að þurfa á framfærslu bæjarins að halda undanfarið rúmt ár, en komst að þeirri niðurstöðu að það komi málinu einfaldlega ekki við. Staðreyndin er sú að ég hef neyðst til að þrauka af þessum krónum núna í meira en ár og einfaldlega get ekki meira. Það sem eftir var af mínu andlega þreki eftir langvarandi veikindi er löngu uppurið.

Ég spyr eins og einfeldningur: Hvað ætlar þú að gera til að forða mér og öðrum í minni stöðu frá þessari sáru fátækt og stöðugri niðurlægingu?

Til viðmiðunar eru framfærsluviðmið velferðarráðuneytisins fyrir einstakling með barn rúm 141 þús fyrir utan samgöngu og húsnæðiskostnað,\" segir í bréfi Bjarkar.

Einn bæjarfulltrúi hefur svarað bréfi Bjarkar, Sóley Björk Stefánsdóttir. Í svarbréfi Sóleyjar segir að niðurlægingin sé ekki þeirra sem þurfi á stuðningi að halda heldur þeirra sem skipuleggi samfélagskerfið okkar. \"Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga er auðvitað hugsuð sem neyðarúrræði því skipulagið gengur út á að ríkið eigi að sjá um að styðja þá sem á því þurfa að halda á meðan að sveitarfélögin eiga að sjá um að reka almenna þjónustu við íbúana,\" ritar Sóley Björk bæjarfulltrúi.

 

\"Ég geri mér grein fyrir að ég er að segja „ekki benda á mig“ og bendi á ríkið en það er líka vegna þess að það er ríkisvaldið sem skammtar sveitarfélögunum fjármagn. Við megum ekki rukka hærra útsvar og það er jú þaðan sem helstu tekjur bæjarins koma. Það verður líka að segjast að það er afar ósanngjarnt hvernig ríkið hefur velt útgjöldum vegna fjárhagsaðstoðar yfir á sveitarfélögin, t.d. með því að stytta tíma atvinnuleysisbóta og hækka útgjöld sjúklinga í heilbrigðiskerfinu, þetta finnst mér algjörlega ólíðandi og fullkomlega ósanngjarnt á sama tíma og fjármálaráðherra grobbar sig af því að ríkissjóður sé svo vel rekinn.\"

 

Sóley Björk bendir á að fjárhagsaðstoð sveitarfélaga eigi að vera neyðaraðstoð og ríkið eigi að sjá til þess að allir hafi sómasamlega framfærslu. \"...og ég er bara ekki viss um að ég geti gert neitt til að breyta því. Ég vona að þú sendir þetta bréf til alþingismanna því þar liggja völdin til að breyta kerfinu,\" skrifar bæjarfulltrúi VG á Akureyri, og bætir við að svar hennar muni ekki bæta aðstæður Bjarkar og sonar en hún eigin hennar samhug vegna aðstæðna.
 
Björk svarar Sóleyju Björk að hún sjái ekki hvernig samhugur geti breytt neinu og er nokkuð harðorð er hún svarar bæjarfulltrúanum: \" Ég er hrædd um að samhugur borgi ekki salt í grautinn. Eins verð ég að viðurkenna að það eru mér gífurleg vonbrigði að þú afsalir þér stjórnarskrárbundinni ábyrgð um að tryggja fólki framfærslu með kítingi út í ríkið eins og það að sveitarfélögin hafi ekki staðið sína pligt sé einfaldlega og augljóslega eitthvað sem eðllilegt sé að lendi á herðum þeirra sem minnst mega sín í samfélaginu.\"
Hringbraut hefur sent nýjum forsætisráðherra Íslands, Sigurði Inga Jóhannssyni, fyrirspurn vegna máls Bjarkar þar sem spurt er hvort til standi að bæta aðstæður þess hóps sem hún tilheyri í samfélaginu.
 
-BÞ