Í sjónvarpsþættinum Fólk með Sirrý í kvöld var fjallað um margskonar kvíða sem manneskan á við að setja, þar á meðal flughræðslu, en í þættinum sáum við unga konu takast á við þá hræðslu sína með því að stökkva í fallhlíf út úr flugvél.
Það er Kristín Edda Sigurðardóttir sem áhorfendur gátu fylgst með fara upp í flugvél á Hellu í þætti gærkvöldsins og henda sér úr henni með aðstoð fagmanns þegar réttri flughæð hafði verið náð. Flugferðin og stökkið er liður í námskeiði sem Kristín Edda hefur sótt til að vinna á alvarlegri flughræðslu sinni sem hefur plagað hana um árabil og gert það af verkum að hún á í meira lagi erfitt með að setjast um borð í flugvél á milli landshluta eða meginlanda.
Kristín Edda var einn af gestum Sirrýjar í þættinum en þar var einnig rætt ítarlega við sálfræðinga um kvíðavandann sem er mun algengari á meðal fólks en margur heldur og getur birst í æði mörgum myndum sem eru misjafnlega áberandi úti í samfélaginu.
Fólk með Sirrý er hægt að nálgast á hringbraut.is í heild sinni eða í klippum.
Klippu sem sýnir stökk Kristínar Eddu er hægt að horfa á með því að smella hér: