Svona verður mjólkin okkar til

Sjónvarpsþátturinn Atvinnulífið verður ekki sveitalegri en í kvöld, enda leitar hann uppruna mjólkurinnar austur í sveitum og kynnist því hvernig nútímafjós eru rekin með elegans.

Þetta er seinni þátturinn af tveimur þar sem fjölþætt starfsemi MS er skoðuð, en að þessu sinni kynnist Sigruður K. Kolbeinsson afurðarstöð MS á Selfossi og kúabúinu Reykjum á Skeiðum þar sem bóndakonan Birna Þorsteinsdóttir ræður ríkjum innan um alsjálfvirkja mjaltaþjónanna. Þá kynnast áhorfendur óeigingjörnu starfi mjólkurbílstjóranna og merkilegu æviskeiði mjólkurkýrinnar.

Í þættinum vekur sérstaka athygli hvað starfsemi mjólkuriðnaðarins er umfangsmikil, en yfir 100 þúsund lítrum af mjólk pakkað daglega á Selfossi.

Atvinnulífið austur í sveitum byrjar klukkan 20:30 í kvöld.