Svona venurðu hunda af betli

Spurningar um hunda og hundaþjálfun er eitt vinsælasta fyrirspurnarefnið á upplýsingaveitunni Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar og í þættinum Ég bara spyr, sem sýndur verður á Hringbraut í kvöld, svarar Jóhanna Íris Hjaltadóttir hjá Dýrheimum, nokkrum spurningum hundaeigenda.

Meðal þess sem spurt hefur verið um er hvernig hægt er að kenna hundum að gelta ekki í hvert sinn sem einhver hringir dyrabjöllunni, eða hvað sé hægt að gera, þegar hundur geltir stanslaust í bíl? Þá er Jóhanna beðin um gott ráð, til að venja hunda af því að betla við matarborðið. Þar segir hún að eitt sem hægt er að gera sé að banna hundunum að fara inn í eldhús. Hún hafi gert það sjálf og nú sé tíkin hennar í rauninni meira upptekin af því að svindla sér aðeins inn fyrir svæðið, heldur en af matnum sjálfum.

Rakel Sveinsdóttir, umsjónarmaður þáttarins spurði þá hvort það væri einhver möguleiki á að kenna hundunum þessa nýju siði, ef þeir væru til dæmis vanir því að mega valsa inn og út úr eldhúsinu að vild? Já, sagði Jóhanna og benti á að sjálf ætti hún fjóra hunda og þetta væri aðferð sem hún hefði bara tekið upp á fyrir ári síðan.

Meira fyrir hundaeigendur í Ég bara spyr í kvöld kl.21.30. Þátturinn er endursýndur kl.23.30 og um helgar.